15. mars 2009
Þegar þessi færsla er skrifuð veit ég ekki annað um árangur minn í prófkjörinu en það að ég náði ekki einu af 12 efstu sætunum. Yfirkjörstjórn sýnir okkur, sem náðum lakari árangri en þeim, ekki þá tillitsemi að senda okkur heildarniðurstöðuna eftir að talningu lauk.
Ég leitað eftir stuðningi í 2., 3. eða 4. sætið á listanum. Þeim árangri náði ég ekki. Fjarri því. Kjósendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík telja greinilega að listinn í Reykjavík verði sigurstranglegri án mín. Það eru skilaboð sem ekki verða misskilin af minni hálfu. Ég mun ekki aftur gefa kost á mér á þessum vettvangi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Af því þarf hvorki flokkurinn, meðframbjóðendur mínir né kjósendur að hafa áhyggjur.
Ég fann þó fyrir mjög miklum stuðningi við framboð mitt. En sá stuðningur var, miðað við niðurstöðuna, ekki nægilega mikill til að árangur næðist.
Öllum þeim sem studdu mig dyggilega í þessu prófkjöri vil ég þakka stuðninginn af heilum hug. Þeim sem árangri náðu í prófkjörinu óska ég innilega til hamingju.
Uppgjör um kostnað vegna þátttöku minnar í prófkjörinu hef ég birt á bloggsíðu minni www.doggpals.blog.is
14. mars 2009
Ein meginkrafa búsáhaldabyltingarinnar var breytingar. Nú um helgina fá kjósendur í prófkjörum stjórnmálaflokkanna tækifæri til að gera breytingar þegar þeir velja frambjóðendur á lista flokkanna fyrir alþingiskosningarnar 25. apríl nk.
Ég gef kost kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og leita ég eftir stuðningi kjósenda í 2., 3. eða 4. sætið. Nánari upplýsingar um mig má finna á bloggsíðu minni www.doggpals.blog.is, hér á heimasíðu minni www.dogg.is og á kynningarsíðu Sjálfstæðisflokksins www.profkjor.is.
Kjósum nýtt fólk á Alþingi.
Kjósum fólk með reynslu og þekkingu.
Kjósum fólk sem þorir og getur.
11. mars 2009
Á www.mbl.is hafa nú birst tvær greinar til stuðnings framboði mínu. Búið er að setja tengingar á þessar greinar hér í hægri dálkinum á síðunni, fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér greinarnar.
10. mars 2009
Hér er linkur á viðtalið við mig á sjónvarpsstöðinni INN í gærkvöldi, 9. mars 2009:
http://inntv.is/Horfaáþætti/Ýmsirþættir/Íprófkjöri09032009/tabid/765/Default.aspx
10. mars 2009
Í gærkvöldi var viðtal við mig á INN sjónvarpsstöðinni. Það verður endurflutt nokkrum sinni. Hvet alla til að kíkja á það. Milli kl. 10 og 11 í dag, þriðjudaginn 10.mars, verð ég á Útvarpi Sögu hjá Sigurði G. Tómassyni. Hægt er að hlusta í gegnum tölvuna með því að smella á http://utvarpsaga.is/ Þátturinn verður endurfluttur í kvöld kl. 23.
Linka á hvorutveggja mun ég setja hér á heimasíðuna mjög fljótlega.
7. mars 2009
Í morgun bauð ég til mín á fundi stjórnum sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Ég er sérlega ánægð með þessa fundi. Mæting var prýðileg og samræður góðar. Mér finnst gagnlegt og gott að heyra í þessum lykilmönnum okkar í flokksstarfinu. Það er öllum sem vilja starfa í pólitík mikilvægt að vera í góðu sambandi við grasrótina í flokknum. Stjórnarmenn í sjálfstæðisfélögunum tilheyra svo sannarlega þeim hópi og eru í raun kjölfestan í flokknum.
6. mars 2009
Hvöt stóð fyrir prýðilegri móttöku milli 17 og 19 í dag. Vel var mætt bæði af hálfu Hvatarkvenna og frambjóðenda. Hvöt stendur fyrir áróðri um 2+2 nú í prófkjörinu sem snýst um að kjósa jafnt af konum og körlum. Það er mikilvæg ábending. Sjálfstæðisflokkurinn á minna fylgi að fagna meðal kvenna. Það skiptir því miklu að í verki verði sýnt að konur eru til jafns við karla valdar á lista Sjálfstæðisflokksins um allt land. Það er eina leiðin til að höfða sterkar til kvenna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltof mikið karllægt yfirbragð á sér. Því þarf að breyta. Það verður best gert með því að velja konur til jafns við karla í efstu sætin á listunum.
5. mars 2009
Stefnumótið við kjósendur í austurhluta borgarinnar heppnaðist einstaklega vel. Mæting var góð og fundarmenn áhugasamir um að kynnast frambjóðendum sem best. Fundarmenn sem frambjóðendur höfðu bæði gagn og gaman að. Það er ómetanlegt að fá tækifæri til að tala beint við kjósendur með þessum hætti. Kjósendum liggur greinilega margt á hjarta og mörgum finnst að meira mætti hlusta á það sem þeir eru að segja. Því er ég mjög sammála. Grasrótin í hverjum flokki er undirstaða hans. Ef forystumenn flokks hætta að hlusta á grasrótina losast um mikilvæg tengsl. Það kann aldrei góðri lukku að stýra.
Á morgun gefst færi á að hitta frambjóðendur með heldur óformlegri hætti því Hvöt býður til móttöku í Valhöll kl. 17. Hvet alla til að mæta.
4. mars 2009
Ekki grunaði mig það að einhver myndi fara í uppnám yfir fréttatilkynningunni sem ég sendi í gær um þátttöku mína í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. En sú er raunin. Alþjóðlegur fjárfestingabanki, með höfuðstöðvar á Akureyri, telur mig drótta að sér í fréttatilkynningunni og sendi frá sér yfirlýsingu í morgun af því tilefni. Yfirlýsingunni hef ég nú svarað á bloggsíðu minni, www.doggpals.blog.is Jafnframt hef ég sent yfirlýsinguna á mbl.is og vænti þess að hún birtist þar.
Ég hvet alla til að kíkja á bloggsíðuna mína.
4. mars 2009
Hverfafélögin í vesturhluta borgarinnar stóðu fyrir stefnumótafundi í kvöld milli frambjóðenda í prófkjörinu og kjósenda. Þetta var bráðskemmtilegt. Frambjóðendur gengu á milli borðanna þar sem kjósendur sátu, settust niður, einn við hvert borð og höfðu svo 3 mínútur til að kynna sig og sín baráttumál við þá sem við borðin sátu. Stundum voru kjósendur svo áhugasamir um einhver sérstök mál og afstöðu til þeirra að kynningin frá manni sjálfum fólst í að svara spurningum kjósenda.
Leikurinn verður endurtekinn á fimmtudag kl. 20 í Árbæjarskóla og er sá fundur ætlaður fyrir austurhluta borgarinnar - þó auðvitað allir, hvar sem þeir búa í bænum, séu velkomnir.